Fréttir

Vísir.is - Ættleiðingar samkynhneigðra leyfðar í Kólumbíu

Mynd: EPA
Mynd: EPA

ERLENT 07:59 05. NÓVEMBER 2015
VÍSIR/EPA SUNNA KRISTÍN HILMARSDÓTTIR SKRIFAR

Stjórnarskrárdómstóll í Kólombíu hefur úrskurðað að pör af sama kyni geti nú ættleidd börn í landinu. Fram til þessa hafði slíkt aðeins verið leyfilegt ef barnið var afkvæmi annars aðilans í sambandinu.

Dómstóllinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ættleiðingarþjónustur mættu ekki mismuna viðskiptavinum sínum á grundvelli kynferðis og því skyldi öllum heimilt að ættleiða, svo framarlega sem öll lagaleg skilyrði væru uppfyllt.

Í úrskurðinum kemur fram að bann við ættleiðingum samkynhneigðra takmarkaði rétt barna til að eiga fjölskyldu. Baráttufólk fyrir mannréttindum fagnaði úrskurðinum en andstæðngar ættleiðinga samkynhneigðra hyggjast áfrýja honum til æðri dómstóls.

Staðfest samvist samkynhneigðra er leyfileg í Kólombíu en frumvarp um hjónaband þeirra var fellt á þinginu þar í landi árið 2013.

Vísir.is - Ættleiðingar samkynhneigðra leyfðar í Kólumbíu


Svæði