Vísir.is - Samtökin '78 ósátt við hægt gengi ættleiðinga
SNÆRÓS SINDRADÓTTIR SKRIFAR
„Við erum búin að eiga í þessu samstarfi í fimm ár en það hefur lítið gerst,“ segir Unnsteinn Jóhannsson, formaður trúnaðarráðs Samtakanna '78 og meðlimur í samstarfshópi samtakanna og Íslenskrar ættleiðingar. Hann telur Íslenska ættleiðingu ekki standa sig í að koma á samningum við lönd sem ættleiða börn til samkynja para. Félagið segir að engin lönd bjóði upp á þá leið. Unnsteinn segir að Íslensk ættleiðing fari fram á að Samtökin '78 vinni forvinnuna sem þarf til að koma á samningum við erlend ríki. Vinnan yrði öll unnin í sjálfboðastarfi. Hann segir að forvinna þeirra hafi skilað þeim niðurstöðum að Argentína, Brasilía, Úrúgvæ, Mexíkó og sum fylki Bandaríkjanna heimili ættleiðingar til samkynhneigðra para. Þá liggur fyrir opin fyrirspurn til Suður-Afríku í utanríkisráðuneytinu.
Þegar land er fundið þarf að svara ítarlegum spurningalista um hvert land fyrir sig, þar á meðal um pólitískan og efnahagslegan stöðugleika landsins. „Ég set spurningarmerki við það að lítill hópur eigi að sitja og svara þessum listum í frítíma sínum, þegar samtök á borð við Íslenska ættleiðingu eru með þjónustusamning við íslenska ríkið,“ segir Unnsteinn.
![Auður Magndís, framkvæmdastjóri Samtakanna 78 Auður Magndís, framkvæmdastjóri Samtakanna 78](http://www.visir.is/apps/pbcsi.dll/storyimage/XZ/20160127/FRETTIR01/160129020/H3/0/H3-160129020.jpg?MaxW=240&NoBorder=1)
![Kristinn Ingvarsson, framkvæmtastjóri Íslenskrar ættleiðingar Kristinn Ingvarsson, framkvæmtastjóri Íslenskrar ættleiðingar](http://www.visir.is/apps/pbcsi.dll/storyimage/XZ/20160127/FRETTIR01/160129020/H4/0/H4-160129020.jpg?MaxW=240&NoBorder=1)