Málþing Í.Æ. vel heppnað
Málþing Íslenskrar ættleiðingar sem skipulagt er að Pasnefnd félagsins stendur nú yfir í Seljakirkju. Málþingið er sérstaklega vel sótt en um sjötíu manns sitja þingið.
Dagskráin málþingsins hófst í morgun klukkan tíu á því að Ögmundur Jónasson dómsmála- og mannréttindaráðherra setti þingið. Ögmundur gerði sér lítið fyrir og heiðraði samkomuna með nærveru sinni til hádegis. Óhætt er að fullyrða að þátttaka ráðherrans lýsi einlægum og eindregnum áhuga hans á málaflokknum.