Útilega ÍÆ 12.-14.júlí 2013
Í ár verður útilega ÍÆ haldin í Varmalandi í Borgarfirði. Þar erum við með bókað húsið sem er með góðan samkomusal, eldhús og 10 gistiherbergi og svo erum við með afmarkað merkt tjaldsvæði.
Opin sundlaug er á staðnum sem hægt er að nýta sér http://www.sundlaug.is/vesturland-sundlaugar/57-varmaland.
Dagskráin verður auglýst betur síðar en á laugardeginum verður aðal skemmtidagskráin og á sunnudeginum ætlum við að hittast í samkomusalnum kl. 11:00 þar sem allir koma með eitthvað á sameiginlegt borð svo við getum átt góða stund saman áður en haldið er heim. Einnig er hægt að koma á laugardeginum og vera bara yfir daginn og fara að dagskrá lokinni.
Kjötbúðin http://kjotbudin.is/grillthjonusta/ sér um sameiginlegt grill á laugardagskvöldinu og er matseðillinn eftirfarandi: Heilgrillað lambalæri og BBQ kjúklingabringur.
Bakaðar kartöflur og sætkartöflusalat.
Ferskt salat með fetaosti og sólþurkuðum tómötum.
Léttsteikt grænmeti.
Gular baunir
Sultaður rauðlaukur
Heit sósa og bearnais sósa
Verð fyrir mat: 3.450 kr. á mann fyrir fullorðinn, ½ gjald fyrir börn að 12 ára og frítt fyrir börn 4 ára og yngri. Allir koma með eigin drykkjarföng.
Þátttökugjald: 1000 kr. á fullorðinn félagsmann ÍÆ, 2750 kr. á fullorðinn utanfélagsmann og frítt fyrir börnin (innifalið öll aðstaðan, skemmtiatriði, pylsugrill og smá glaðningur fyrir börnin).
Gisting á tjaldsvæði: Frítt fyrir félagsmenn ÍÆ yfir helgina, 2000 kr á fullorðinn utanfélagsmann ( í tjaldi, tjaldvagni eða fellihýsi).
Innigisting: 5000 kr. nóttin í herbergi (tvö einbreið rúm, hægt að fá auka dýnur en fólk þarf að koma með sængur).
Skrifstofa ÍÆ sér um skráningu og innheimtu. Best er að senda tölvupóst á isadopt@isadopt.is til að skrá sig. Þar þarf að koma fram: nafn, kennitala og sími greiðanda, fjöldi fullorðna, fjöldi barna, aldur barna, hvort taka eigi þátt í sameigilegum mat og hvort gista eigi og þá hvernig.
Skráningu líkur 7. júlí.
Hlökkum til að sjá sem flesta
Skemmtinefndin