Vísir.is - Ætlar til Indónesíu að leita föður síns án nokkurra vísbendinga
Óðinn Eddy Viðarsson, 43 ára Akureyringur, ætlar sér að fara til Indónesíu til að leita að blóðföður sínum og vill fá með sér tökumann til að fara með sér á ferðalag til að kvikmynda ferðalag sitt og leitina að föðurnum.
Fjallað var um þetta fyrirhugaða ferðalag Óðins, sem á að hefjast í desember, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Aðspurður um hvort hann væri með einhverjar vísbendingar um föðurinn svarar Óðinn neitandi. Hann hafi farið til Indónesíu árið 2015, verið þar í tvö ár og fundið blóðmóður sína.
„Ég ætla að fara dýpra í málið varðandi hana. Ég ætla að spyrja hana spurninga sem ég spurði ekki þá,“ segir Óðinn sem segist ekki hafa viljað spyrja blóðmóður sína út í föður sinn þegar hann hitti hana þá.
„Ég vildi nú ekki spyrja hana á þessu augnabliki. Þegar þú hittir strákinn þinn á þessu augnabliki eftir 32 ár, þá held ég að það sé ekki gott að spyrja að þessu,“ bætir hann við.
Óðinn útskýrir að þegar hann hafi farið að leita móður sinnar hafi miklu fleiri upplýsingar legið fyrir um hana heldur en föður hans núna.
Tilfinningaþrungnir endurfundir
„Það var mikið grátið og það var rosalega tilfinningaþrungið. Maður hitti mömmu, og svo kemur systirin, og svo kemur bróðirinn. Þetta var allt á innan við klukkustund að maður komst að því að maður ætti systkini líka,“ segir Óðinn um stundina þegar hann hitti fjölskyldu sína í Indónesíu.
Leitar líka að tökumanni
Líkt og áður segir leitar Óðinn ekki bara að blóðföður sínum, heldur einnig að myndatökumanni. Hann vill að sá hinn sami fari með sér í ferðalagið til Indónesíu og fylgist með leitinni.
Kvikmyndatökumaðurinn myndi fá frítt uppihald og flug til Indónesíu, og fá að upplifa ævintýrið með Óðni. Hann býst við því að vera úti í tvo til þrjá mánuði.
Starfskröfurnar eru þær að tökumaðurinn kunni á myndavél, dróna og upptökuvél.
Óðinn vonast bæði til þess að geta tekið upp það þegar hann finnur blóðföður sinn, og líka þegar hann ferðast ásamt fjölskyldu sinni frá Indónesíu til Íslands og kynnir hana fyrir fjölskyldunni á Íslandi.
Sjá frétta á visir.is