Auglýsing frá fjáröflunarnefnd
Á vefsíðu fjáröflunarnefndar er auglýsing með ýmsum varning sem nefndin hefur til sölu, smelltu hér til að skoða auglýsinguna.
Fjáröflunarnefnd Íslenskrar ættleiðingar
Í ár ætlar fjáröflunarnefnd ÍÆ að gefa út jólakort.
Sandra Oddsdóttir, fædd á Sri Lanka, teiknaði fyrir okkur kortið en auðveldlega má líma inn í það mynd af litlum gullmolum þegar það á við. Tíu kort kosta 1000 kr.
Vinsamlega pantid tímanlega með því að senda póst á heimur@mt.is eða hringið á skrifstofuna í síma 588 1480 og athugið að benda vinum og vandamönnum á þennan möguleika ef þeir vilja styrkja gott málefni með kortaskrifum sínum.
Kortin verða send út um miðjan nóvember en við getum tekið á móti kreditkorta greiðslum í gegnum síma frá 10.nóv.- 10.des. Kostnaður við sendinguna fer eftir staðsetningu móttakanda.
Fjáröflunarnefnd vill leitast við að styrkja verkefni í þeim löndum sem Íslensk ættleiðing er í sambandi við.
Um fjáröflunarnefndina
Fjáröflunarnefndin starfar í samræmi við eitt að meginmarkmiðum Íslenskrar ættleiðingar sem er að vinna að velferðarmálum barna erlendis.
Hlutverk nefndarmanna
Hlutverk nefndarmanna er að afla styrkja hjá einstaklingum og fyrirtækjum og safna fé eftir öðrum leiðum. Þetta fé er svo m.a. notað til þess að styrkja einstök barnaheimili á Indlandi í gegnum samtök sem heita Indian Society for Rehabilitation of Children (ISRC) þar sem Anju Roy framkvæmdastjóri ISCR er tengiliður IÆ og kunnug Guðrúnu framkvæmdastjóra, en Anju ráðstafar peningunum eftir þörfum í þau verkefni sem eru í gangi hverju sinni. Hér er heimasíðahttp://www.orphancareintl.org/India-1.htm
Einnig sendir IÆ peninga til samtaka sem heita Tomorrow Plan Project og er á vegum China Center of Adoption Affairs en þessi samtök veita munaðarlausum börnum með sérþarfir læknisaðstoð og endurhæfingu. Hér má sjá ágæta kynningu á Tomorrow Plan Projecthttp://www.adoptassoc.com/international/china/special_needs/tomorrow_plan/ og hér má sjá síðu CCAA en flestar upplýsingar á þessari síðu eru á Kínversku.http://www.china-ccaa.org/mtjh/mtjh_list_en.jsp?type=241
Starfsemi nefndarinnar
Á aðalfundi í mars 2007 skilaði fjáröflunarnefnd ársins 2006 af sér ágætri stöðu. Nefndarmenn höfðu selt stuttermaboli með merki félagsins með góðum hagnaði, en gaman er að segja frá því hér að hjón sem hafa ættleitt frá Kína og búa þar sendu félaginu þessa boli. Einnig stóð nefndin fyrir skrappnámskeiði, pakkaði jólapökkum, aflaði styrkja frá fyrirtækjum og seldi húfur og vettlinga af miklum móð. Núverandi nefndarmenn eru með ýmis plön á prjónunum en allar hugmyndir eru velþegnar og svo og sjálfboðaliðar í nefndarstörf og í einstök verkefni.
Leiðir til að styrkja
Ef einstaklingar vilja styrkja starf fjáröflunarnefndina með
framlögum þá er auðvelt að leggja inn á reikning í gegn
heimabanka eða í banka.
Ég vil styrkja
það barnaheimili sem þarf helst aðstoð hverju sinni
513-26-8875
kt. 531187-2539
Ég vil styrkja
barnaheimili á Indlandi
525-14-604555
kt. 531187-2539
Ég vil styrkja
barnaheimili í Kína eða verkefnið Tomorrow Plan Project
525-14-604666
kt. 531187-2539
Bolir með merki félagsins
Nú er komin ný sending af fallegu stuttermabolunum. Þeir koma í mörgum stærðum, frá 80 - xxxxl og litirnir eru rauður, ljósgrár, svartur, blár, bleikur og sægrænn. Bolirnir kosta kr. 1.500 í barnastærðum frá 80-140 og 1.800 frá xs-xxxxl. Þetta eru stærðir fyrir allar fjölskylduna. Bolirnir eru seldir á skrifstofunni og hjá Klöru í s. 8645340. Póstsendum.
Varningur til sölu
Fjáröflunarnefnd er með ýmsan varning til sölu, smelltu hér til að skoða auglýsingu yfir varninginn.