Jólaskemmtun 8. desember 2024
Jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna þann 8. desember 2024 milli klukkan 14 og 16 í Safnaðarheimili Laugarneskirkju, 105 Reykjavík.*
Jólasveinar mæta vonandi á svæðið og dansað og sungið verður í kringum jólatréð við skemmtilegt undirspil.
Veitingar eru innifaldar í verðinu og það er aldrei að vita hvað Sveinki verður með í pokanum sínum.
Verð fyrir félagsmenn er aðeins 1.900 kr. og 800 kr. fyrir börn þeirra, en fyrir þá sem eru ekki félagsmenn kostar 3.500 kr. á mann.
Öll velkomin - börn og foreldrar, ömmur og afar, frænkur og frændur og öll hin.
*síðasti skráningardagur er 3. desember 2024