Söfnun fyrir barnaheimili í Kalkútta
Vinkonurnar Lia og Sigrún bjóða upp á gefandi stund á Húsavík í tilefni alþjóðalega ættleiðingadagsins, laugardaginn 9. nóvember 2024 en Lia er eiginkona Daníels Annisius sem er ættleiddur frá Indlandi. Markmiðið er að styrkja góðgerðarsamtökin Illuminate India sem styrkja barnaheimili í Kolkata, þaðan sem nokkrir Húsvíkingar eru ættleiddir, m.a. Daníel.
Daníel er stoltur af sínum uppruna og hefur heimsótt barnaheimilið í tvígang og heldur góðum tengslum við Indland. Í fyrra var hans síðasta heimsókn en hægt er að lesa um heimsóknina hér: https://gentlegiants.is/news/2023/02/23/returning-back-to-india-local-companies-gentle-giants-and-isfell-support-my-childrens-home
Verð inn á viðburðin eru 2000 kr. á fjölskyldu, en þau sem sjá sér ekki fært að mæta geta veitt frjálst framlag með því að senda póst til Daníels: daniel.annisius@outlook.com
https://www.worldadoptionday.org/