Fréttir

Sumargrill ÍÆ 25.ágúst

Sunnudaginn 25.ágúst klukkan 13.00 ætlum við að hittast í Frístundagarðinum í Gufunesbæ og eiga góða stund saman.
Þar er að finna virkilega skemmtilegt svæði fyrir börn og fjölskyldur og við höfum góða reynslu af því að hittast á þessu svæði.

Krossum fingur að sólin láti sjá sig, en annars bara klæðum við okkur upp eftir veðri. Klósettaðastaða hefur verið opnuð á svæðinu.

Íslensk ættleiðing býður uppá grillaðar pylsur og drykki.

Viðburðurinn kostar ekkert, en við óskum eftir því að fólk skrái þátttöku og fjölda hér:


Svæði