Tékkland
Okkur er ánægja að segja frá því að í gær kom heim fyrsta barn sem ættleitt er frá Tékklandi. Það er 19 mánaða yndislegur strákur sem var á góðu barnaheimili í N-Tékklandi. Fjölskyldan, pabbi, mamma og stóra systir, fór til Tékklands og dvaldi í rúmar 3 vikur, ekki þurfti tvær ferðir eins og áætlað hafði verið.
Hægt er að senda fleiri umsóknir hjóna til Tékklands, sjá nánar um skilyrði í landaupplýsingum.