"Somewhere between" á Akureyri
Laugardaginn 9.nóvember munu félagar Íslenskrar ættleiðingar fá tækifæri til að horfa saman á heimildarmyndina Somewhere between þar sem skyggnst er inn í líf fjögurra unglingsstúlkna (Haley, Jenna, Ann og Fang) sem allar eiga það sameiginlegt að hafa verið ættleiddar frá Kína til Ameríku. Myndin fylgir þeim í þrjú ár þegar sjálfsvitundin er að eflast og þær eru að velta fyrir sér spurningum eins og „Hver er ég?“.
Sýningin hefst kl. 14:00 í Brekkuskóla á Akureyri. Boðið verður upp á popp og kók.
Eftir sýningu myndarinnar verður boðið upp á umræður.
Frítt fyrir félagsmenn Íslenskrar ættleiðingar og 500 kr. fyrir utanfélagsmenn.
Vinsamlegast skráið þátttöku ykkar á isadopt@isadopt.is.