Ættleiðing systkina
Unnur Björk Arnfjörð og Páll Kristbjörn Sæmundsson ættleiddu þrjá bræður sl. sumar á aldrinum tveggja til fimm ára frá Tékklandi Skömmu síðar ættleiddu Stefanie og Torben Gregersen þrjár systur á aldrinum fimm til átta ára frá sama landi.
Unnur Björk og Stefanie segja frá aðdraganda og undirbúningi ættleiðingarinnar, dvölinni úti, heimkomunni og aðlöguninni hér heima.
Kynningin fer fram í Tækniskólanum, stofu 207, kl. 20:00, miðvikudaginn 24. febrúar 2016. Þeim sem eiga ekki heimangengt er boðið upp á kynninguna á netinu. Skráning er á heimasíðu Íslenskrar ættleiðingar. Ókeypis er fyrir félagsmenn en kostar kr. 1000 fyrir utanfélagsmenn.