Fjölskylduhátíð í Kínverska sendiráðinu
Sendiherra Kína á Íslandi Jin Zhijian og sendiherrafrú He Linyun bjóða börnum ættleiddum frá Kína og fjölskyldu þeirra á fjölskylduhátíð laugardaginn 10.nóvember kl 16:30 - 18:30 í Kínverska sendiráðinu, Bríetartúni 1, 105 Reykjavík og verður boðið uppá kvöldverðarhlaðborð.
Þau hafa beðið Íslenska ættleiðingu að hafa milligöngu um að bjóða börnunum og fjölskyldum þeirra og til að áætla fjölda gesta biðjum við ykkur um að skrá þá sem munu þiggja boðið.
Sendiherrahjónin hafa einnig óskað eftir því að fá upplýsingar um á hvaða aldri börnin eru og því óskum við eftir því að það komi fram við skráningu.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir laugardaginn 27.október.