Fyrirlestraröðin Snarl og spjall
Næsta fimmtudag, 15.febrúar, verður haldið erindi á vegum Konfúsíusarstofnunar og Kínversk – íslenska menningarfélagsins (KÍM). Yabei Hu, kínverskukennari og myndasöguteiknari, mun flytja erindi um kínverskt netmál og menningu. Tungumál netheima í Kína er stútfullt af slangri, dulinni merkingu og óvæntum nálgunum. Hvort sem þú talar reiprennandi kínversku eða alls enga er fjölmargt sem þú getur lært um menningu kínverskra netheima í þessum fyrirlestri Yabei.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Staður og stund: Veröld hús - Vigdísar, stofa 007. Fimmtudaginn 15. febrúar, kl. 17:30.
Nánari upplýsingar á vef KÍM, www.kim.is.
Aðgangur ókeypis.
Öll hjartanlega velkomin!