Stjórnarfundur 10.05.1984
Á fundinum voru ræddir möguleikar um ættleiðingar frá ýmsum löndum sem þegar hefur verið skrifað en engin svör borist enn.
Þá voru biðlistar ræddir og samræmdir.
Einnig var gert lauslegt uppkast af fréttabréfi sem Guðbjörg ætlar að ljúka við og senda út og mun það innihalda fréttir af gangi mála og fólk beðið að staðfesta skráningu sína á biðlista fyrir 15. júní næstkomandi svo hægt sé að ganga út frá vísu hverjir eru virkir og tilbúninr að fara og hverjir eru ekki ákveðnir.
Þá var ákveðið að halda fjölskylduskemmtun fyrir alla félaga og börn þeirra í september næst komandi.
Mættir voru:
Guðbjörg Alfreðsdóttir formaður
María Pétursdóttir vara form.
Birgir Sigmundsson gjaldkeri
Sigurður Karlsson ritari
Monika Blöndal meðstj.
Elín Jakobsdóttir varamaður
Sig. Karlsson