VÍSIR - Skuldir hindra ættleiðingu
INNLENT
Stökkbreytt skuldastaða hjóna á biðlista eftir ættleiðingu veldur því að afgreiðsla umsókna þyngist að mun. Í mörgum tilfellum eru það gengistryggð lán, sem dæmd hafa verið ólögleg, sem valda fólki erfiðleikum. Heimildir Fréttablaðsins herma að fólk eigi jafnvel á hættu að falla af biðlista vegna þessa.
Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, segir að forsamþykki til ættleiðinga sé í gildi í ákveðinn tíma og þá þurfi að fá það endurnýjað. „En hafi fjárhagsleg staða viðkomandi breyst frá þeim tíma sem forsamþykki til ættleiðingar fékkst í upphafi og til þess tíma sem endurskoðun fer fram getur það valdið því að fólk missir rétt sinn. Þetta er því miður svona, það er rétt."
Sýslumaðurinn í Búðardal annast veitingu leyfa til ættleiðinga. „Sýslumaðurinn hefur lýst því yfir að embættið hafi sérstaka rannsóknarskyldu í kjölfar efnahagshrunsins. Hann hefur því lagt sig sérstaklega eftir því að rýna í þetta atriði," segir Hörður.
Ekki er tekið tillit til þess ástands sem hér hefur skapast eftir hrun, segir Hörður, sem vill að skýrari reglur verði settar um fjárhagslega stöðu fólks sem vill ættleiða barn.
„Sýslumanni hugnast það líka illa að fólk sé ekki í eigin húsnæði. Þetta er algjörlega á skjön við það sem gerist á Norðurlöndunum, þar sem það er ekki talið skipta máli hvort fólk sem vill ættleiða er í leiguhúsnæði," segir Hörður.
Íslensk ættleiðing sendi fyrr á þessu ári erindi til dómsmálaráðuneytisins þar sem þess var farið á leit að við endurskoðun á ættleiðingarlöggjöfinni „sé sérstök ástæða til að taka til athugunar það mikla vald sem einni manneskju hjá sýslumannsembætti úti á landi er falið með útgáfu á forsamþykki til ættleiðinga". Í svari ráðuneytisins segir að ekkert sé við stjórnsýslu sýslumannsins að athuga. - shá
http://www.visir.is/skuldir-hindra-aettleidingu/article/2010367739728